Ekið á tvö börn

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Ekið var á tvö börn við tvo skóla á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Um klukkan 8 varð barn fyrir bifreið við skóla í Hafnarfirði og á sama tíma varð barn fyrir bíl við skóla í Garðabæ.

Farið var með börnin á slysadeild til skoðunar en þau sluppu svo til ómeidd. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þetta sé áminning um að sífellt þurfi að vera á varðbergi í umferðinni hvort sem er við skóla eða annars staðar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku