Eignist ekki land bakdyramegin

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra telur að fara eigi varlega í viðræðum við kínverska fjárfestinn Huang Nubo um langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum. Vonandi sé ekki verið að fara bakdyramegin með ígildi eignarhalds inn á öræfi landsins.

Sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi leita nú leiða til að nýta sér þann áhuga sem Huang Nubo hefur sýnt varðandi fjárfestingar í ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum. Málið tók nýja stefnu þegar iðnaðarráðherra tók málið upp í kjölfar synjunar innanríkisráðherra á kaupum Huangs á jörðinni. Bæjarstjóri Norðurþings er í Kína til viðræðna við Huang á þeim nótum að sveitarfélög kaupi Grímsstaði og leigji Huang jörðina í kjölfarið.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki þekkja þessar viðræður en bendir á að ekki sé um einstakling að ræða heldur samsteypu fjárfestingafyrirtækja. „En ég vona að það sé ekki verið að fara að fara bakdyramegin með eignarhald eða ígildi eignarhalds inn á öræfi landsins. Ég ætla nú bara að leyfa mér að hafa uppi varnaðarorð hvað það varðar og minna á að kúlulausnir, hvort sem er í atvinnumálum eða öðru, hafa reynst varasamar og ekki varanlegar vegna þess að kúlur hafa haft tilhneigingu til að springa.“

Ögmundur segir dæmi þess hér á landi að umfangsmiklir leigusamningar til langs tíma geti jafnast á við eignarhald. Því verði að fara varlega, passa upp á landið og auðlindir þess. „Við eigum bara að fara varlega og ekki hafa glýju í augum þegar veifað er miklum auðæfum framan í okkur.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku