Egypsk sendinefnd snýr heim
Fyrst birt: 07.02.2012 02:16, Síðast uppfært: 07.02.2012 11:57

Sendinefnd frá egypska hernum aflýsti í dag fundum með bandarískum þingmönnum í Washington í vikunni og sneri heim eftir að bæði bandarísk stjórnvöld og þingmenn hótuðu að hætta hernaðaraðstoð við Egyptaland.
Stjórnvöld í Egyptalandi tilkynntu í gær að yfir 40 starfsmenn frjálsra félagasamtaka verði ákærðir fyrir ólöglega fjármögnun þeirra. Flestir hinna ákærðu eru útlendingar, þar á meðal 19 Bandaríkjamenn. Samtökin eru flest erlend og vinna að mannréttindum og lýðræðisumbótum. Formælandi Bandaríkjaforseta sagði í kvöld að ákærurnar kynnu að hafa áhrif á samskipti landanna og á hernaðaraðstoðina. Hún nam í fyrra 1,3 miljörðum dollara.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







