Prenta frétt

Senda frétt Horfa á frétt

DV til sölu - óvissa um eignarhald

Reynir Traustason, ritstjóri DV.
Reynir Traustason, ritstjóri DV.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, gerir sér vonir um að safna um sig hópi fjárfesta til að kaupa blaðið. Birtingur, útgáfufélag DV, hefur sett blaðið á sölu.

Ekki hefur verið gefið upp hverjir hyggjast bjóða í DV. Ritstjórinn kveðst þó vera í þeirra hópi, og vill fá með sér fleiri fjárfesta. Á meðal annarra sem hafa verið nefndir sem hugsanlegir kaupendur DV er Jón Ásgeir Jóhannesson.

Reynir segist hafa heyrt og lesið um orðróminn um sölu blaðsins. Hann getur þó ekki staðfest að Jón Ásgeir eða Bakkavararbræður hafi hug á að kaupa blaðið. Hann segist sjálfur hafa einsett sér að vera ekki í samstarfi við útrásarvíkinga.

Reynir vill ekki gefa upp nöfn þeirra fjárfesta sem fari með honum. Sjálfur vilji hann leggja til tíu milljónir króna.  


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

6. september 2010

Streymiþjónusta