Dulbjuggu sig sem Eimskipsmenn

Mynd úr öryggismyndavél.

Brýnt er að stjórnvöld finni lausn á vanda hælisleitenda, segir öryggisstjóri Eimskips. Félagið þarf að greiða milljóna sekt komi það með laumufarþega til Bandaríkjanna. Í nótt var maður handtekinn í Sundahöfn við þriðju tilraun sína til að lauma sér um borð í Reykjafoss.

Reykjafoss siglir til Bandaríkjanna og var maðurinn, sem segist vera frá Alsír, á ferð með félaga sínum frá Súdan. Þeir komu sér inn á svæðið laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. „Síðan voru þeir með bönd með sér og búnað til að breiða yfir gaddavírinn og fóru hérna yfir girðinguna síðan fara þeir inn á svæðið hér og fela sig í þessum hlerum hérna,“ segir Eyþór H. Ólafsson, öryggisstjóri Eimskips.

Mennirnir klæddu sig í sams konar fatnað og starfsmenn á hafnarbakkanum nota og settu upp hjálma merkta Eimskip. Þeir biðu til miðnættis og gengu þá í átt að skipinu. Eftirlitsmaður kom auga á þá og þeir voru teknir höndum. Mennirnir voru með kúbein með sér og mat. Þeir virtust hafa undirbúið sig talsvert því í fyrradag fannst handgerður kaðalstigi á hafnarbakkanum.

Alsírbúinn hefur tvívegis áður reynt að lauma sér úr landi. Fyrir þremur vikum tókst honum að komast um borð í Reykjafoss. „Við fundum laumufarþegann inni í þröngu plássi þar sem hann lá,“ segir Michael Yante, háseti á Reykjafossi. Maðurinn var í samfestingi samlitum skipinu og því hafði Mikael ekki komið auga á hann. „Ég fann hann vegna þess að við þurftum að setja lása hér og kannski varð hann hræddur vegna þess að það var einhver við hlið hans. Hann hrökk við og þess vegna varð ég þess var að það væri manneskja þarna.“

Um sjötíu vegabréfslausir hælisleitendur eru hér á landi. Mennirnir sem handteknir voru í nótt gistu í fangaklefa og voru fluttir aftur að Fitjum að lokinni yfirheyrslu í dag.

„Þetta fer mjög vaxandi núna,“ segir Eyþór. „Það eru engin viðurlög við þessu. Þeir eru kannski teknir og settir inn í einn sólarhring og sleppt og þá geta þeir reynt aftur í næstu ferð.“ Þessu finnst Eyþór að verði að bregðast við. „Ég get ekki annað séð en þetta sé vaxandi vandamál sem stjórnvöld verða að taka á,“ segir Eyþór. „Það verður að finna lausn á þessu því þetta getur ekki annað en endað með skelfingu í rauninni.“

Laumufarþegum hefur tekist að koma sér undir þiljur í skipum og fela sig innan um kaðla í geymslu fyrir landfestar. Þar verður mjög kalt, sjórinn gengur yfir stefni skipsins og vart myndi nokkur maður lifa það af að dvelja þar alla leiðina til Ameríku. Þá reyndu tveir menn fyrir tveimur árum að lauma sér um borð með því að sigla á fleka úr dekkjaslöngum. Þegar þeir höfðu kastað kaðalstiga með krók um borð og klifið upp í skipið biðu þar lögreglumenn sem tóku þá höndum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku