Drullu rafmagnað fótboltafólk

Keppni í hinni óhefðbundnu mýrarboltaíþrótt hefur farið fram á Ísafirði um Verslunarmannahelgina frá árinu 2005. Keppt er í knattspyrnu í drullusvaði og afar erfitt að athafna sig í drullunni. Íþrótta- og mannlífsþátturinn 360 gráður skellti sér til Ísafjarðar vopnaður hundaólum, fullum af stuði.
Ólarnar eru notaðar við hundaþjálfun og gefa rafstuð, ef þrýst er á hnapp á þar til gerðri fjarstýringu. Hundaólarnar voru settar á alla leikmenn í sýningarleiknum, en Einar Örn Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson stýrðu fjarstýringunum og stuðuðu leikmenn til skiptis til að hafa áhrif á leikinn.
Afraksturinn verður sýndur þegar 360 gráður hefja göngu sína á ný í október, en styttri útgáfa Stuðboltans var sýnd í EM kvöldi á RÚV í kvöld og má sjá hér að ofan. Sjón er sögu ríkari.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is








