Dóttir Houston flutt á sjúkrahús

Átján ára dóttir Whitney Houston, Bobbi Kristina, var flutt á sjúkrahús í Los Angeles í kvöld, tæpum sólarhring eftir sviplegt andlát móður sinnar. Talið er að hún hafi bugast eftir atburði undanfarins sólarhrings en eftir meðhöndlun á sjúkrahúsinu var hún útskrifuð.
Von er á föður hennar og fyrrverandi eiginmanni Houston, Bobby Brown, til Los Angeles í dag en hann hyggst mæta til Grammy verðlaunahátíðarinnar og minnast Houston þar, eins og fleiri munu gera.
Whitney Houston hefur verið syrgð um allan heim í dag en hún fannst látin í baðkari á hótelherbergi sínu í gær. Enn hefur ekkert verið gefið út opinberlega um dánarorsök hennar en óstaðfestar heimildir herma að Houston hafi liðið út af í baði, vegna neyslu róandi lyfja, og drukknað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
MannlífTilkynna um bilaða upptöku







