Dómarar og eftirlitsmenn erlendis

Nóg er að gera hjá íslenskum handknattleiksdómurum og eftirlitsmönnum erlendis þessa dagana.
Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson dæmdu í gærkvöld undanúrslitaleik Sádí-Arabíu og Kóreu á Asíumeistaramóti karla í handknattleik en Kórea vann eins marks sigur 27-26. Þeir félagar munu dæma leik BM Atletico Madrid og Bjerringbro-Silkeborg í Meistaradeild Evrópu karla sem fram fer í Madríd á Spáni laugardaginn 11.febrúar. Þá var Gunnar K. Gunnarsson eftirlitsmaður á leik FC Midtjylland og Larvik í Meistarakeppni Evrópu kvenna í Ikast í Danmörku í gærvöld.
Guðjón L. Sigurðsson verður eftirlitsmaður á síðari leik Team Tvis Holstebro og Team Esbjerg í Evrópukeppni félagsliða kvenna í Holstebro laugardaginn 11.febrúar.
Kristján Halldórsson verður eftirlitsmaður á fyrri leik Viborg HK og IK Savehof í Evrópukeppni bikarhafa kvenna í Viborg í Danmörku laugardaginn 11.febrúar.
Helga Magnúsdóttir verður eftirlitsmaður Larvik og Grupu Asfi Itxako Navarra í Meistaradeild Evópu kvenna í Larvik í Noregi sunnudaginn 12.febrúar.
Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson munu dæma leik OIF Arendal og Vfl Gummersbach í Evrópukeppni bikarhafa karla í Nedenes í Noregi laugardaginn 18.febrúar.
Þá verður Ólafur Örn Haraldsson eftirlitsmaður á síðari leik Rhein-Neckar Löwen og Eskilstuna Guif í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða karla í Mannheim í Þýskalandi laugardaginn 18.febrúar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







