Djúpið fær góða dóma
Fyrst birt: 09.09.2012 14:17, Síðast uppfært: 10.09.2012 08:30

Úr kvikmyndinni Djúpið.
Fyrsti dómurinn um kvikmynd leikstjórans Baltasars Kormáks, Djúpið, er nokkuð góður, en hann birtist á heimasíðu Hollywood Reporter í morgun. Kvikmyndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto á föstudag.
Í dómnum er atriðum í byrjun myndarinnar sem gerast úti á sjó líkt við það besta úr smiðju leikstjóranna James Cameron og Wolfgang Petersen. Cameron hlaut Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndina Titanic og Petersen var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir kvikmyndina Das Boot.
Í dómnum segir að Djúpið missi þó aðeins dampinn þegar aðalsöguhetjan er komin á land. Ólafur Darri Ólafsson, aðalleikari myndarinnar, fær sérstakt hrós fyrir sína frammistöðu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












