Deilt um gjaldskrá OR

Orkuveita Reykjavíkur fékk ekki leyfi ráðherra fyrir gjaldskrárbreytingum á hitaveitu í dreifbýli í Rangárvallasýslu og hefur því verið að innheimta samkvæmt óstaðfestri gjaldskrá um nokkurt skeið.

Þetta kemur fram á vefsíðu Sunnlenska fréttablaðsins. Þar segir að hreppsnefnd Ásahrepps telji að OR hafi stundað ólöglega innheimtu á notendum í Ásahreppi með ítrekuðum hækkunum. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar segir að gjaldskráin hafi verið í samræmi við eldri reglugerð. Nú sé unnið að því að gera nýja gjaldskrá í samræmi við reglugerð sem sett var um áramótin. Búast megi við einhverjum hækkunum en Eiríkur bendir á að öll gjaldskráin hafi lækkað um tæpan þriðjung þegar Orkuveitan keypti Hitaveitu Rangæinga um miðjan síðasta áratug. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Neytendamál

Tilkynna um bilaða upptöku