Deiliskipulagstillögu mótmælt
Fyrst birt: 07.02.2012 12:43, Síðast uppfært: 07.02.2012 13:17

Undirskriftarlistinn afhentur.
Tæplega 2000 manns hafa skrifað á undirskriftarlista þar sem deiliskipulagstillögu fyrir svokallaðan Drottningarbrautarreit á Akureyri er mótmælt.
Fólkið er ósátt við byggingaráform á reitnum. Það telur að hótel og aðrar nýbyggingar muni skyggja á mörg af elstu húsum bæjarins og breyta ásýnd miðbæjarins. Undirskriftalistinn var afhentur bæjarstjóra Akureyrar í morgun en í dag rennur út frestur til þess að gera athugasemdir við tillöguna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







