Danir og Svíar komust áfram
Fyrst birt: 12.05.2011 21:32, Síðast uppfært: 09.06.2011 16:20

Eric Saade, fulltrúi Svía í söngvakeppni Evrópu. Mynd.Nordic Photos/AFP
Nú liggur ljóst fyrir hvaða þjóðir munu eiga fulltrúa á sviðinu í söngvakeppni Evrópu í Düsseldorf á laugardag.
Nítján þjóðir kepptu um hin sætin 10 sem í boði voru fyrir lokakeppnina og fyrirfram höfðu blaðamenn í Düsseldorf spáð Svíum og Írum áfram. Það gekk eftir auk þess sem danska lagið náði einnig að tryggja sér sæti í aðalkeppninni. Hin umslögin sjö höfðu að geyma nöfn Bosníu, Austurríkis, Úkraínu, Moldavíu, Slóveníu, Rúmeníu og Eistlands. Tuttugu og fimm lög keppa á laugarfag og verða Vinir Sjonna númer 21 í röðinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







