Contador sviptur titlinum og í bann

Spánverjinn Alberto Contador, sem sigraði í Frakklandshjólreiðunum árin 2007, 2008 og 2010, hefur verið dæmdur í tveggja ára keppnisbann vegna ólöglegrar lyfjanotkunar.

Þá hefur hann einnig verið sviptur titlinum sem hann vann í Frakklandshjólreiðunum árið 2010 og í Ítalíuhjólreiðunum í fyrra. Contador var sakaður um að hafa notað ólöglega efnið Clenbuterol og það var staðfest af alþjóðlegum íþróttadómstól í Sviss í gær í samstarfi við Spænska hjólreiðasambandið. Contador, sem er 29 ára, mun því ekki keppa í hjólreiðunum næstu tvö árin. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku