CCP hýsir gögn hjá Verne
Fyrst birt: 09.02.2012 16:13, Síðast uppfært: 09.02.2012 16:13

Gagnaver Verne í Reykjanesbæ tilkynnti í dag um tvo nýja viðskiptavini. Það eru tölvuleikjafyrirtækið CCP og fyrirtækið GreenCloud en forsvarsmenn þess eru íslenskir.
CCP mun hýsa hluta af gögnum sínum hjá Verne en það hýsir mest af gögnum sínum í Lundúnum. Gagnaverið var formlega opnað í gær og var áður búið fá að einn viðskiptavin; bandaríska fyrirtækið Datapipe.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







