Býst við að fá uppsagnarbréf

Brekkuskóli á Akureyri.

Snorri Óskarsson grunnskólakennari á Akureyri segist búast við því að honum verði sagt upp vegna skrifa sinna um samkynhneigð á bloggsíðu sem hann heldur úti. Snorri hefur verið boðaður á fund með fræðslustjóra Akureyrar og bæjarlögmanni á mánudaginn.

Snorri kennir unglingum í Brekkuskóla á Akureyri og skrif hans hafa vakið reiði forelda. Snorri segir að í fundarboði hans komi fram að á mánudaginn eigi að kynna honum niðurstöðuna í því sem kallað er yfirstandandi áminningarferli vegna skrifa hans.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Menntamál

Tilkynna um bilaða upptöku