Byrjunarliðin í stjörnuleik NBA

Kobe Bryant leikur sinn fjórtánda stjörnuleik.
Byrjunarliðin í stjörnuleik bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar hafa verið kunngjörð. Stjörnuhelgin fer fram í Orlando í Florída ríki að þessu sinni, síðustu helgina í febrúar og nær hápunkti með stjörnuleiknum sunnudagskvöldið 26. febrúar.
Kosið er á netinu um hvaða menn skuli leika stjörnuleikinn. Fjórir af fimm byrjunarliðsmönnum Vesturdeildarliðsins koma frá Los Angeles. Tveir frá LA Lakers og tveir frá LA Clippers.
Kobe Bryant leikur sinn 14. stjörnuleik á ferlinum.
Austurdeildin
Derrick Rose, Chicago Bulls
Dwayne Wade, Miami Heat
Dwight Howard, Orlando Magic
LeBron James, Miami Heat
Carmelo Anthony, New York Knicks
Vesturdeildin
Kobe Bryant, LA Lakers
Chris Paul, LA Clippers
Andrew Bynum, LA Lakers
Kevin Durant, Oklahoma City Thunder
Blake Griffin, LA Clippers.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







