Byrjaðir að smíða varaáætlun

Niðurstöðu er að vænta í kvöld eða fyrramálið frá Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands vegna kæru Keflavíkur. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur kærði framkvæmd leiks Keflavíkur og Njarðvíkur í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna, þar sem Njarðvík fór með sigur af hólmi.
Vegna kærumálsins hafa leikir í undanúrslitum bikarkeppni kvenna ekki ennþá farið fram og raunar ekki verið fundin dagsetning á leikina ennþá.
Bikarúrslitaleikurinn er svo fyrirhugaður 18. febrúar, en nú er ljóst að sú dagsetning er í hættu. Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ sagði við RÚV í dag að ljóst væri að bikarúrslitaleikur karla milli Keflavíkur og Tindastóls færi fram á settum tíma, 18. febrúar, en óljóst væri með kvennaleikinn vegna kærumálsins. Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður KKÍ sagði svo í dag að sambandið væri byrjað að smíða varaáætlun fyrir úrslitaleik kvenna, takist ekki að afgreiða málið í tíma og spila undanúrslitaleikina.
Eftir að niðurstaða frá Aga- og úrskurðarnefnd liggur fyrir, hafa félögin frest til að áfrýja úrskurðinum og því enn óljóst hvenær hægt verður að spila undanúrslitaleiki keppninnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







