Búið að draga í Evrópukeppni



  • Prenta
  • Senda frétt

Í morgun var dregið í aðra umferð EFH-keppninnar í handknattleik en Íslandsmeistarar HK sitja hjá í fyrstu umferð og mæta annað hvort RK Maribor Branik frá Slóveníu eða HB Dudelange frá Lúxemborg í annarri umferð.

Bikarmeistarar Hauka byrja hins vegar í fyrstu umferð og drógust gegn HC Mojkovac frá Svartfjallalandi en takist Hafnarfjarðarliðinu að komast í aðra umferð mætir það Zaporozhye frá Úkraínu. Íslands- og bikarmeistarar Vals í kvennaflokki mæta spænska liðinu Valencisa Áicequip í annarri umferð en Fram dróst gegn Tertnes frá Bergen í Noregi. Fyrri leikirnir fara fram 13. og 14. október en seinni leikirnir viku síðar bæði í karla- og kvennaflokki. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku