Búið að dæla úr bílnum

Mynd: Leifur Bremnes.

Mun betur gekk að dæla úr olíuflutningabílnum sem valt í Hestfirði í Ísafjarðardjúpi í gærkvöldi en útlit var fyrir í fyrstu. Rétt fyrir klukkan níu lauk slökkviliðið við að dæla olíu úr tanknum.

Ljóst er þó að nokkur þúsund lítrar hafa lekið úr tankinum. Þrátt fyrir að búið sé að dæla olíunni upp er enn nokkurt verk óunnið í Hestfirði. Þar á eftir að ná upp bílnum og tankinum og flytja hvort tveggja á brott. Því er útlit fyrir að Djúpvegur verði lokaður í tvo til þrjá klukkutíma enn frá mynni Hestfjarðar til Súðavíkur.

Hættuástand var á slysstað í nótt og í morgun. 39 þúsund lítrar af bensíni voru í tanki bílsins og skapaðist af því sprengihætta. Hún minnkaði þó þegar tókst að taka straum af bílnum um klukkan sex í morgun.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vestfirðir

Tilkynna um bilaða upptöku