Brúarreykir fá starfsleyfið aftur

Mynd úr safni.


  • Prenta
  • Senda frétt

Brúarreykir í Borgarfirði hafa fengið starfsleyfi frá Matvælastofnun. Úrbótum er lokið en eftirlit með búinu verður meira en gengur og gerist. Mjólkursamsalan kaupir mjólk frá búinu en enn hefur hún ekki verið notuð í framleiðslu.

Matvælastofnun afturkallaði starfsleyfi Brúarreykja í byrjun desember vegna brota á reglum um hollustuhætti við framleiðslu mjólkur og sláturgripa. Fundið var að hreinlæti við handþvottaaðstöðu, mjaltaþjónn var skítugur, for var um allt fjós og upp um alla veggi og gripir haugskítugir. Þá var þrifum á mjólkurtanki mjög ábótavant, auk þess sem of margir gripir voru í fjósinu.

Steinþór Arnarson, lögfræðingur hjá Matvælastofnun, segir að nú sé búið að kippa þessu í liðinn. Fjósið hafi verið hreinsað, úrbætur verið gerðar á mjólkurhúsinu, mjaltaþjónn þrifinn, gripir merktir og loftið í mjólkurhúsinu lagað. Þá sé búið að koma lagi á hjarðbók og gripum hafi verið fækkað. Brúarreykir hafi því fengið starfsleyfi síðastliðinn föstudag en eftirlit með búinu verði hert.

Mjólkursamsalan hefur hafið viðskipti við búið að nýju en að sögn Einars Sigurðssonar forstjóra hefur mjólkin enn sem komið er ekki verið notuð til framleiðslu. Fyrst um sinn verði mjólkin aðeins gæðamæld og henni síðan fargað. Hún verði ekki notuð til framleiðslu fyrr en niðurstöður mælinganna sýni að hún standist gæðakröfur.

Í nóvember afturkallaði Matvælastofnun einnig starfsleyfi Ingunnarstaða í Reykhólahreppi vegna brota á reglum um hollustuhætti. Búið hefur sótt um leyfi til framleiðslu á ný en ekki skilað þeim gögnum sem stofnunin óskaði eftir. Staðan þar er flóknari því deilt er um hvort ábúandinn hafi leyfi til að sækja um starfsleyfi þar sem jörðin fór á uppboð. Engin mjólk hefur verið afhent þaðan frá 12. nóvember en fulltrúar Matvælastofnunar fara á staðinn í vikunni og skoða aðbúnað dýranna sem þar eru.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku