Breytingar hjá Rhein-Neckar Löwen

Danski auðmaðurinn Jesper Nielsen hefur slitið öll tengsl við þýska handknattleiksliðið Rhein-Neckar Löwen.

Daninn Jesper Nielsen hefur sagt af sér sem stjórnarformaður Rhein-Neckar Löwen, sem Guðmundur Guðmundsson þjálfar í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik.

Nielsen, sem er eigandi dönsku meistaranna í AG Kaupmannahöfn, ætlar að einbeita sér eingöngu að rekstri danska liðsins en með því leika Ólafur Stefánsson, Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson. Þá hefur einnig verið staðfest að pólsku landsliðsmennirnir Karol Bielecki og Krzysztof Lijewski yfirgefa Rhein-Neckar eftir tímabilið og ganga til liðs við pólska liðið Vive Kielce og verða þar með liðsfélagar Þóris Ólafssonar. Rhein-Neckar Löwen hefur hins vegar tryggt sér krafta sænsku vinstri skyttunnar Kim Ekdahl du Rietz sem kemur frá Nantes í Frakklandi. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku