Breska liðið vann upphafsleik ÓL
Fyrst birt: 25.07.2012 21:13, Síðast uppfært: 26.07.2012 09:30

Breska liðið fagnar sigurmarki sínu - Mynd: AFP
Ólympíuleikarnir í London verða formlega settir á föstudagskvöld en kvennaliðin í knattspyrnu hófu þó keppni í dag og vann breska kvennalandsliðið 1-0 sigur á Nýja-Sjálandi í fyrsta viðburði leikanna.
Japan lagði lið Kanada 2-1, Bandaríkin unnu Frakkland 4-2 og Brasilía sigraði Kamerún 5-0. Þá lagði Svíþjóð lið Suður-Afríku 4-1 og Norður-Kórea vann Kólumbíu 2-0.
Staðan í riðlunum:
E-riðill:
- Brasilía 3 stig
- Bretland 3 stig
- Nýja Sjáland 0 stig
- Kamerún 0 stig
F-riðill:
- Svíþjóð 3 stig
- Japan 3 stig
- Kanada 0 stig
- Suður-Afríka 0 stig
G-riðill:
- Bandaríkin 3 stig
- Norður-Kórea 3 stig
- Kólumbía 0 stig
- Frakkland 0 stig
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













