Breiðfylkingin fundar
Fyrst birt: 12.02.2012 13:56, Síðast uppfært: 12.02.2012 15:32

Frá stofnfundi Breiðafylkingarinnar
Stofnfundur Breiðfylkingarinnar, nýs stjórnmálaflokks sem Hreyfingin, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og nefndarmenn úr stjórnlaganefnd standa að, hófst á hádegi. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir þetta í raun fyrri stofnfund af tveimur.
Meðlimir Breiðfylkingarinnar fari nú yfir samþykktir og drög af stefnumálum. Síðari stofnfundurinn verði í næsta mánuði þegar fylkingin verði fullmótuð. Um fimmtíu manns eru á stofnfundinum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







