Bréf móður hafði enga þýðingu

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms og hafnað kröfu manns um að dómari víki sæti vegna meintrar óvildar látins föður dómarans í garð föður mannsins. Málsatvik eru þau að maðurinn krafðist þess að héraðsdómari í einkamáli mannsins á hendur Landsbankanum myndi víkja sæti vegna vanhæfis.

Sagði hann að látnum föður dómarans hafa verið í nöp við látinn föður sinn og vísaði í því sambandi til bréfs sem öldruð móðir hans skrifaði. Þar er það borið á föður dómarans að hann hafi í störfum sínum ofsótt föður mannsins, bæði sem lögmaður og sem Gjaldheimtustjóri í Reykjavík. Bréfið var skrifað fyrir tæpum þrjátíu árum. Þá lagði maðurinn fram ýmis gögn frá árunum 1981 til 1984 þessu til sönnunar. Héraðsdómur hafnaði beiðninni og í dag staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð. Segir í dómi Hæstaréttar að gögnin, sem lögð voru fram, hafi enga þýðingu við úrlausn málsins. Manninum var því gert að greiða allan málskostnað Landsbankans eða fjögurhundruð þúsund krónur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku