Braut rúðu í lögreglubíl
Fyrst birt: 12.02.2012 06:32, Síðast uppfært: 12.02.2012 10:29

Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði um hálfþrjúleytið í nótt, eftir að hafa brotið rúðu í lögreglubíl. Maðurinn, sem var mjög ölvaður og æstur, settist óboðinn inn í lögreglubílinn þar sem lögreglumenn voru við störf.
Eftir að hafa verið vísað út hafði hann ógnandi tilburði í garð lögreglumannanna og braut afturrúðuna á bílnum. Talið er að hann sé skipverji á erlendu skipi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







