Bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl
Fyrst birt: 11.07.2011 08:09, Síðast uppfært: 11.07.2011 10:49
Vinna við bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl hefst í dag. Fjöldi tækja og mannskapur er nú á leið austur.
Hlaupið úr Mýrdalsjökli hreif með sér brúna yfir Múlakvísl og því er hringvegurinn rofinn. Vegagerðin leggur nú allt kapp á að koma upp brú til bráðabirgða yfir ána. Þórður Tyrfingsson, deildarstjóri viðhalds og þjónustu á suðursvæði hjá Vegagerðinni var gestur í Morgunútvarpinu í morgun. Hann segir fyrstu tækin hafa verið send austur í gærkvöldi.
Þórður segir að menn hafi verið kallaðir úr sumarfríum og að unnið verði allan sólarhringinn til þess að brúa Múlakvísl sem fyrst. Hann segir það þó auðvitað taka sinn tíma.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







