Borgaði fargjald fyrir álfahjónin

Álfasteinninn kom til Vestmannaeyja síðdegis og með honum heil kynslóð álfa, að því er sagt er. Mynd:Sighvatur Jónsson
25 tonna steinn var í dag fluttur frá Sandskeiði til Vestmannaeyja að frumkvæði Árna Johnsens. Hafa þurfti sérstakan viðbúnað því álfar, sem sagðir eru búa í steininum, voru fluttir sér.
Fyrir tveimur árum lenti Árni Johnsen í bílslysi við Litlu kaffistofuna, fór nokkrar veltur í bíl sínum niður brekku, sem endaði gjöreyðilagður á hjólunum við þennan stein. Þegar ljóst varð að steinninn myndi lenda undir breikkuðum Suðurlandsvegi bað hann verktakana við breikkunina um að taka steininn til hliðar.
Í steininum búa að sögn álfar sem settir voru í tágakörfur svo færi vel um þá í búferlaflutningunum. Steinninn var svo fluttur til Vestmannaeyja og komið fyrir við hús Árna Johnsens í Vestmannaeyjum eftir hádegi. Árni segir að það hafi ekki kostað mikið að færa steininn: „Það kostar í rauninni mjög lítið því menn eru að hjálpast að í þessu“ segir Árni.
Álfahjónin sem sögð eru búa í steininum, ásamt fleirum, fóru með til Vestmannaeyja með Herjólfi: „Menn hafa gaman af þessu, þeir leggja þessu lið. Svo borgum við fyrir ungu hjónin fargjald, formlegan miða fyrir álfakarl og álfakonu með Herjólfi“ segir Árni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












