Bollur á ferðalagi

Það er bolludagur og margir láta ekkert stoppa sig í að njóta hans sem mest og best. Og sumir leggja á sig andvökur og löng ferðalög til að aðrir geti troðið í sig.

Klukkan er hálfsex að morgni bolludags en bakararnir í Geirabakaríi í Borgarnesi hafa verið í vinnunni sem nemur tæplega heilum vinnudegi, eða frá því ellefu í gærkvöldi til að baka bollur og þeyta rjómann. Og fyrsti viðskiptavinur dagsins er Eyvindur kaupmaður í Hólakaupum á Reykhólum, en hann fór snemma á fætur til að sækja bollurnar enda ferðalagið ríflega 300 kílómetrar fram og til baka.

Og sumir fá bollurnar alveg inn á gafl, meðal annars starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar sem kunnu vel að meta að fá feitar rjómabollur með morgunkaffinu.
 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku