Prenta frétt

Senda frétt Horfa á frétt

Bleikja til Bandaríkjanna

Bleikja.
Bleikja.
Framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg.

Hlífar Karlsson ,framkvæmdastjóri Rifóss, segir að búið sé að selja bleikju nokkur ár fram í tímann og unnið sé að því að auka framleiðsluna. Þannig að innan tveggja ára verði framleiðslan um 1000 tonn, en nú er hún á sjötta hundrað tonn.

Hlífar telur engan vafa á því að fiskeldi hér á landi eigi sér bjarta framtíð.

 

 

 

 

 

 

 


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

3. september 2010

Streymiþjónusta