Bjartsýni um meirihluta í Grindavík

Bæjarstjóri Grindavíkur, Róbert Ragnarsson, mun að öllum líkindum halda áfram þegar nýr meirihluti hefur verið myndaður.


  • Prenta
  • Senda frétt

Enn ríkir bjartsýni um árangursríkar viðræður um myndun nýs meirihluta í Grindavík, segir Bryndís Gunnlaugsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík. Fulltrúar Framsóknarflokks, Grindavíkurlista og Samfylkingarinnar munu funda um málið í kvöld.

Bryndís segir að staðan sé að öðru leyti sú sama og fyrir helgi og frekari tíðinda verði ekki að vænta fyrr en að fundi loknum. Hún hafði ekki meira að segja að svo stöddu.

Haft hefur verið eftir Bryndísi í fjölmiðlum að samstaða sé um að ekki verði skipt um bæjarstjóra enda sé núverandi bæjarstjóri, Róbert Ragnarsson, ópólitískur og ráðinn á þeim forsendum. Því muni meirihlutaskipti ekki hafa neinn auka kostnað í för með sér fyrir bæjarfélagið.

Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur sprakk í þrígang á síðasta kjörtímabili.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku