Bílnum var ekið óvarlega
Ferðatrukknum, sem fór á bólakaf í Blautulónum, var ekið óvarlega í fjöruborðinu, segir þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði. Hann hafnar þeirri skýringu forstjóra tékknesku ferðaskrifstofunnar að þungi bifreiðarinnar hafi verið orsökin.
Bíllinn var dreginn á land um tvöleytið í dag og verður fluttur til byggða í kvöld.
Tveir kafarar hafa unnið að því síðan í gær að undirbúa björgun tékkneska ferðatrukksins sem fór ofan í Blautulón. Þeir höfðu fest við hann flotbelgi, og dregið hann nokkur hundruð metra frá staðnum sem hann fór ofan í, á betri stað til að draga hann upp í fjöruborðið.
Um tvöleytið í dag tókst loksins að koma trukknum á fast land, með aðstoð beltagröfu og traktors. Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, var einn af þeim sem fylgdist með. Hann segir að þessi heimsókn í þjóðgarðinn hafi ekki verið velkomin.
Eigandi trukksins hafnar því að ökumenn sínir fari óvarlega um hálendisvegi hér. Hann segir þá þjálfaða og að gerð sé sú krafa að þeir séu áreiðanlegir. Hann segist ekki geta svarað því hvers vegna myndir og myndbönd sýni þá aka ógætilega.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







