Árið 2006 var hafið beint áætlunarflug yfir sumarmánuðina milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Í sumar flýgur Iceland Express til Kaupmannahafnar og London. Rannsóknamiðstöð ferðamála gerði síðastliðið sumar viðamikla viðhorfskönnun meðal brottfararfarþega í beinu flugi frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Niðurstöðurnar voru um margt athyglisverðar. Þeir sem koma í beinu flugi til Akureyra stoppa þar að meðaltali í 7,3 nætur meðan þeir farþegar sem fljúga til Keflavíkur gista að meðaltali 1,8 nótt á Norðurlandi.
Í ljósi þessarar skýrslu eru vonir bundnar við að unnt verði að efla enn frekar beint millilandaflug til Akureyrar.
frettir@ruv.is