Bátur sendur eftir fólki vegna ófærðar

Frá Súðavík í gær. Safnmynd.


  • Prenta
  • Senda frétt

Bátur er lagður af stað frá Ísafirði til að sækja fólk á Súðavík. Þar er á annan tug fastur vegna ófærðar og veðurs og hefur verið frá því á föstudag. Nú standa hins vegar vonir til að fólkið verði komið til Ísafjarðar fyrir hádegi, sjóleiðina.

Veðrið hefur gengið niður í Súðavík. Í nótt og í morgun var vindur og skafrenningur en þar er hríðarmugga eins og er. Það er búið að ryðja flestar leiðir innan bæjar en það var hætt við að ryðja veginn milli Ísafjarðar og Súðavíkur í morgun vegna snjóflóðahættu og fannfergis. Þannig að það er ekki útlit fyrir að það verði opnað fyrir áramót. Vegurinn um Eyrarhlíð er opinn en enn vaktaður, búið að opna Gemlufjallsheiði til Þingeyrar en skefur í, ófært er til Flateyrar. Lögreglan á Ísafirði opnaði fyrir umferð um Hnífsdalsveg laust fyrir klukkan tíu.

Hættuástandi á flugvellinum á Ísafirði var aflétt um klukkan tíu. Starfsmenn flugvallarins mega því fara til vinnu. Enn hefur ekki verið tekið ákvörðun um flug. Veður er slæmt og hefur frestast að taka ákvörðun um flug, nú er beðið til klukkan ellefu en þá verða næst gefnar upplýsingar um hvort ákveðið hafi verið að fljúga eða ekki.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku