Barðir, hýddir og fá raflost

Stuðningsmenn Múammars Gaddafís, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, hafa lýst því hvernig þeir hafa verið pyntaðir í fangelsi í Misrata eftir að uppreisnarmenn náðu völdum í Líbíu.

Fréttamaður BBC ræddi við fanga í Misrata sem sögðu honum að þeir hefðu verið barði, hýddir og fengið raflost. Fangarnir sögðu þó að pyntingarnar hefðu átt sér stað áður en þeir voru fluttir í fangelsið. Einn sagðist hafa verið meiddur á fæti þegar hermenn tóku hann afsíðis. Þeir hefðu barið á sárið, sem bólgnaði mikið við það, meðan þeir yfirheyrðu hann.

Ráðamenn í Líbíu hafa neitað ásökunum um pyntingar en Navi Pillay, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir að stjórnin verði að koma fangelsum undir sína stjórn og tryggja mannúðlega meðferð fanga.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku