Banaslys í Silfru

Mynd: Björn Malmquist.
Íslenskur maður á fertugsaldri lést í köfunarslysi á Þingvöllum í dag. Félagi hans var fluttur á sjúkrahús með einkenni köfunarveiki. Mennirnir voru á eigin vegum við köfun í gjánni Silfru.
Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir voru sendar á staðinn um klukkan tvö og þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu. Maðurinn sem lést var að kafa á um 40 metra dýpi þegar eitthvað óvænt kom uppá, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Félagi mannsins fór þegar niður og kom honum upp, þar sem hafnar voru lífgunartilraunir, sem ekki báru árangur. Hinn látni var vanur köfun, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins, en ekki er ljóst hvernig slysið bar að höndum. Kafarar úr sérsveit ríkislögreglustjóra voru send til til að skoða aðstæður í gjánni og sækja búnað kafaranna. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. Ekki hefur tekist að afla upplýsinga um líðan mannsins sem fluttur var á Landsspítalann vegna köfunarveiki.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













