Bæta þarf eftirlit

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.
Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd samninga sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert við aðila utan ríkisins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Í henni er fjallað um 71 samning ráðuneytisins.
Áætlað er að kostnaður við þessa samninga hafi numið um 10,6 milljörðum króna á síðastliðnu ári. Þar af var rúmlega helmingur vegna samninga við Ríkisútvarpið, Háskólann í Reykjavík og Tækniskólann. Í skýrslunni kemur enn fremur fram að eftirlit ráðuneytisins með framkvæmd samninganna sé ekki að öllu leyti í samræmi við ákvæði þeirra. Þá hafi heimildir til endurskoðunar samninga sjaldan verið nýttar og frestur til endurnýjunar ekki virtur í öllum tilvikum. Þetta er sjötta skýrslan sem stofnunin gerir um þessi málefni og samninga ráðuneytanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







