Auðugir flýja ekki skatta

Ríkisskattstjóri segir að gögn embættisins bendi ekki til þess að fjöldi auðugra Íslendinga hafi flutt úr landi til að greiða lægri fjármagnstekjuskatt. Þeir sem hafi flutt út fyrir landsteinanna hafi fæstir farið til landa þar sem skattlagning þessara tekna er hagstæð.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að í ár þurfi ríflega 31 þúsund manns að standa skil á fjármagnstekjuskatti og hafi fækkað um 7700 frá því í fyrra. Í hópi þeirra sem greiddu yfir tíu þúsund krónur í þennan skatt í fyrra hafi 173 flutt úr landi en eins aðeins örfáir til ríkja þar sem telja má skattlagningu fjármagnstekna sérlega hagstæða - til dæmis í Lúxemborg og Sviss. Hinir hafi flestir flutt til Bandaríkjanna, Þýskalands eða hinna Norðurlandanna þar sem skattlagning þessara tekna sé sambærileg og hér.
Skúli Eggert segir að af þeim sem greiddu yfir 100 þúsund krónur í fjármagnstekjuskatt hafi 62 flutt til útlanda og fæstir til þeirra til ríkja þar sem skattbyrði af fjármagnstekjum er umtalsvert lægri en hér. Ríkisskattstjóri bendir á að aðeins þriðjungur af þessum rúmlega 60 skattgreiðendum hafi greitt meira en 200 þúsund krónur í fjármagnstekjuskatt í fyrra.
Skúli Eggert telur að meginskýringin á því að færri greiði fjármagnstekjuskatt í ár séu lægri vaxtatekjur frá fjármálastofnunun vegna lægra vaxtastigs. Mun fleiri séu með minna en 100 þúsund í vaxtatekjur - þeir eru því undir tilteknu frítekjumarki og þurfa því ekki standa skil á fjármagnstekjuskattinum.
Sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte og Touche sagði í fréttum í gær að nokkuð margir auðugir Íslendingar hafi ákveðið að flytja úr landi eftir að ákveðið var að halda áfram að innheimta sérstakan auðlegðarskatt hér á landi. Ríkisskattstjóri bendir á að 42 hafi fallið út af lista yfir þessa skattgreiðendur frá því í fyrra. Þar af séu 35 látnir en sjö hafi flutt til útlanda. Einn þeirra, sem er útlendingur, hafi greitt nokkrar milljónir í auðlegðarskattinn en allir hinir undir einni milljón. Í heild hafi þessi hópur greitt undir tíu milljónum króna í fyrra.
Niðurstaða Skúla Eggerts er því sú að staðhæfingar um að fólk sé að flýja land vegna ofurskatta fái ekki stoð í gögnum skattayfirvalda. Hinsvegar verði svo líka að taka afstöðu til þess hvort þeir sem flutt hafi lögheimili sitt til útlanda séu engu að síður skattskyldir hér á landi til dæmis vegna umsvifa í atvinnurekstri og þátttöku í stjórnum fyrirtækja.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














