Atvinnuleysi minnkar enn

Atvinnuleysi fer enn minnkandi og mældist 5,6 prósent í maí. Búist er við því að atvinnuleysi minnki enn á næstunni. Atvinnuleysi á landinu var 5,6 prósent í maí-mánuði og hefur atvinnulausum fækkað um tæplega eitt prósentustig frá því í apríl.
Alls voru tæplega 10.000 manns skráðir atvinnulausir í síðasta mánuði og hafði þeim fækkað um þúsund manns frá því í apríl. Atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu mældist 6,3 prósent og 4,5 prósent á landsbyggðinni. Mest er atvinnuleysið á Suðurnesjum, 9,4 prósent og minnst á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, um tvö prósent. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi minnki enn frekar í júní og verði þá á bilinu fjögur komma sex til fimm prósent.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













