Átti Hitler son í Frakklandi?
Fyrst birt: 20.02.2012 15:09, Síðast uppfært: 20.02.2012 15:54

Adolf Hitler. Mynd:Getty Images
Nýjar upplýsingar benda til að Adolf Hitler hafi átt son í Frakklandi. Móðurina Charlotte Lobjoie hitti Hitler árið 1917 þegar hann var hermaður í skotgröfum á vesturvígstöðvunum. Sonurinn Jean-Marie Loret fékk skömmu fyrir andlát móðurinnar að vita um faðerni sitt.
Þá sýna skjöl að embættismenn úr þýska hernum afhentu Charlotte Lobjoie umslag með peningum í síðari heimsstyrjöldinni. Þegar hún lést fundust málverk í hennar eigu sem voru árituð af Hitler. Jean-Marie Loret lést 67 ára gamall árið 1985, en lögfræðingur hans hefur nú rakið sögu hans í frönskum fjölmiðlum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







