Ætluðu að stela hurðum

Þrír menn á aldrinum 20 til 55 ára voru handteknir í og við nýbyggingu í Boðaþingi í Kópavogi upp úr klukkan tvö í nótt. Þeir höfðu látið greipar sópa, losað hurðir, blöndunartæki og rafmagnsrofa og voru búnir að flytja hluta af þýfinu í bíl skammt frá þegar lögreglu bar að.

 Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku