Atli og Snjólaug sigursæl
Fyrst birt: 08.02.2012 22:22, Síðast uppfært: 08.02.2012 22:27

Sjöunda mótið í mótaröð Badmintonsambands Íslands, Óskarsmót KR 2012 tvíliða- og tvenndarleikshluti, var í gærkvöld.
Í meistaraflokki unnu bræðurnir Atli og Helgi Jóhannessynir úr TBR þá Arthúr Geir Jósefsson og Einar Óskarsson úr TBR 21-15 og 21-16 í tvíliðaleik karla.
Í tvíliðaleik kvenna unnu Karitas Ósk Ólafssdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir út TBR úrslitaviðureignina við Jóhönnu Jóhannsdóttur og Þorbjörgu Kristinsdóttur úr TBR 21-17 og 21-13.
Tvenndarleikinn unnu Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir úr TBR en þau lögðu Daníel Thomsen og Margréti Jóhannesdóttur úr TBR 21-17 og 21-17 í úrslitum.
Úrslit í A-flokki
- Tvíliðaleikur karla: Snorri Tómasson og Stefán Ás Ingvarsson úr TBR
- Tvíliðaleikur kvenna: Sigríður Árnadóttir og Jóna Kristín Hjartardóttir úr TBR
- Tvenndarleikur: Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir út TBR
Úrslit í B-flokki
- Tvíliðaleikur karla: Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson úr TBR
- Tvíliðaleikur kvenna: Lína Dóra Hannesdóttir og Margrét Nilsdóttir úr TBR
- Tvenndarleikur: Kristófer Darri Finnsson og Margrét Nilsdóttir úr TBR
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







