Átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot



  • Prenta
  • Senda frétt

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í byrjun þessa árs sextugan karlmann í átján mánaða fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn fjórtán ára dreng og barnavændi. Þá var manninum einnig gert að greiða drengnum 600 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn braut gegn drengnum í bíl sínum og greiddi honum fyrir.

Maðurinn hlaut dóm í héraðsdómi á síðasta ári en Hæstiréttur ómerkti þann dóm og vísað honum aftur í hérað.  Í dómnum segir að maðurinn hafi verið í yfirburðastöðu gagnvart drengnum vegna aldursmunar og reynslu og þykir hann hafa brotið gróflega gegn honum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku