Á Akureyri var vakin athygli á baráttudegi kvenna með upplestri og ráðstefnu. Í Eymundsson lásu bæði börn og fullorðnir upp úr jafnréttislögum og texta sem tengjast sögu kvenréttindabaráttu á Íslandi.
Stéttarfélagið SFR ýtti í dag úr vör ráðstefnuröð um jafnrétti og var fyrsta ráðstefnan haldin á Akureyri. Á meðal þess sem þar kom fram er að reynslan sýnir að jafnréttissjónarmið eiga undir högg að sækja á erfiðum tímum.