Átak til að skapa vinnu hafið

Sameiginlegu atvinnuátaki stéttarfélaga, atvinnurekenda, sveitarfélaga og ríkisins var hleypt af stokkunum í dag. Átakið er ætlað þeim sem lengi hafa verið án vinnu, segir Runólfur Ágústsson sem stýrir átaksverkefninu sem hefur fengið nafnið Liðsstyrkur.
„Átakið er að fara af stað, skráningarvefurinn Liðsstyrkur var opnaður í morgun fyrir skráningu á nýjum störfum. Markmiðið er að skapa tækifæri fyrir þá 3.700 einstaklinga sem eru að missa eða tæma sinn bótarétt á árinu. Og við metum það þannig að það þurfi að skapa um 2.200 störf fyrir þennan hóp þannig að enginn detti af bótum án þess að fá fyrst tilboð um starf,“ segir Runólfur.
Atvinnulausum bjóðast störf í hálft ár. Þeim sem ekki treysta sér út á vinnumarkaðinn býðst starfsendurhæfing. Runólfur segir að þeir sem hafi misnotað kerfið og þegið bætur samhliða því að vinna svart geti það ekki lengur. Stefnt er að því að 60 prósent starfanna verði til á almennum vinnumarkaði, 30 prósent hjá sveitarfélögunum og tíu prósent hjá ríkinu. Í atvinnuátakinu
Vinnandi vegur buðu sveitarfélögin mun færri störf en lofað hafði verið. „Það hefur verið gengið frá samkomulagi eða samningum við 18 stærstu sveitarfélögin þar sem þau taka á sig að skapa 660 störf og þau munu að sjálfsögðu standa við þann samning,“ segir Runólfur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














