Ásta Hlín kjörin formaður SUF

Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörinn formaður Sambands ungra framsóknarmanna á þingi sambandsins á Egilsstöðum. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði í kjörinu eða rúmlega helmings fylgi. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson fékk tuttugu og átta atkvæði.

Ásta Hlín er fædd 1989, kemur frá Fáskrúðsfirði og stundar nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur verið starfandi formaður stjórnar SUF síðan í september þegar Sigurjón Kjærnested, sagði af sér formennsku og gekk úr flokknum vegna óánægju með þróun flokksins.



 



 



 



 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku