Að auki hlaut hann viðurkenningu vefjarins tónlist.is fyrir góðan árangurinn í að koma sjálfum sér á framfæri.
Glow með Retro Stefson var valið lag ársins í flokki popps og rokks en hljómsveitin var jafnframt valin tónlistarflytjandi ársins.
Andrea Gylfadóttir var valin söngkona ársins og Valdimar Guðmundsson söngvari ársins í flokknum popp og rokk. Hulda Björk Garðarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson voru valin söngvarar ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.
Lagahöfundur ársins er hljómsveitin Moses Hightower en liðsmenn sveitarinnar, Andri Ólafsson og Steingrímur Teague, voru valdir textahöfundar ársins fyrir texta á plötu sveitarinnar - Önnur Mósebók.
Víkingur Heiðar Ólafsson var valinn tónlistarflytjandi ársins í flokki sígildrar-og samtímatónlistar og plata hans og Kristins Sigmundssonar, Vetrarferðin, var valin besta plata ársins í sama flokki.
The Box tree með Skúla Guðjónssyni og Skúla Sverrissyni var valin hljómplata ársins í flokki djass og blús.
Orkestur eftir Huga Guðmundssonar var valið tónverk ársins í flokki sígildrar-og samtímatónlistar. Bjartur eftir Tómas R. Einarsson var valið tónverk ársins í flokki djass og blús.
Upptökustjóri ársins er Guðmundur Kristinn Jónsson.
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri Hamrahlíðarkórsins hlaut heiðursverðlaunin fyrir starf sitt með kórnum. Þorgerður sagði í þakkarræðu sinni að það væri mikil gæfa að hafa í lífsstarfi sínu unnið með ungu og heilbrigðu fólki.
Reykjavík Midsummer Music hlaut nýsköpunarviðurkenningu og var jafnframt valin tónlistarviðburður ársins. Þá hlaut hljómsveitin Sólstafir styrk frá Loftbrú Reykjavíkurborgar.














