Ásdís mun ræsa Ármannshlaupið

Ásdís Hjálmsdóttir er í Ármanni.
Eitt af því síðasta sem spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir gerir í þágu Glímufélagsins Ármanns áður en hún heldur á Ólympíuleikana í London verður að ræsa Ármannshlaupið annað kvöld. Keppt verður í 10 km götuhlaupi og er hlaupið jafnframt hluti af Sumarhlaupamótaröðinni.
Forskráning í hlaupið hefur verið mjög góð eða ríflega 30% meiri en á sama tíma í fyrra. Forskráningu lauk nú klukkan 16:00. Einnig verður þó mögulegt að skrá sig á morgun á keppnisstað milli 17:00 og 19:30. Rásmark og endamark hlaupsins verður á sama stað, sem er við Vöruhótel Eimskipa við Sundahöfn.
Ásdís Hjálmsdóttir mun annars keppa fyrir hönd Ármanns á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum á Laugardalsvelli um helgina og heldur svo utan á eitt mót, sem verður hennar síðasta fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í lok mánaðar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













