Asahláka og slæmt ferðaveður
Fyrst birt: 13.01.2012 07:14, Síðast uppfært: 13.01.2012 08:11

Asahláka er sunnanlands og vestan og má búast við mikilli hálku á vegum, gangstéttum og bílastæðum. Veðurstofan varar við slæmu ferðaveðri á Suður- og Vesturlandi.
Það má búast má við snörpum vindstrengum við fjöll. Búast má við hálku víða um land þegar líður á daginn. Sunnanátt verður, víða tíu til átján metrar á sekúndu. Það verður rigning eða súld sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðaustantil. Lægir vestanlands í kvöld.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







