Árangurslausar makrílviðræður

Viðræðum Íslendinga, Norðmanna, Færeyinga og Evrópusambandsins um úthlutun makrílkvóta á þessu ári lauk í dag án samkomulags. Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands, segir að of mikið hafi borið í milli.

Tómas vildi ekki gefa upp hvað bar mikið í milli en fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Evrópusambandið og Noregur hafi á fundi í Bergen í síðasta mánuði lagt til að hlutdeild Íslendinga úr sameiginlegum kvóta yrði sjö prósent með nokkrum aðgangi að lögsögum þeirra.  Íslendingar hafi svarað og lagt til 15 prósent.  Var tillögu Íslendinga svarað á fundinum?

Tómas segist ekki geta ekki tjáð sig um efni einstakra tillagna en geti staðfest að ESB og Noregur hafi komið fram með tillögu á síðasta fundi í Björgvin í síðasta mánuði. Íslendingar hafi komið fram með gagntilllögu, en því miður hafi hinir ekki svarað henni á þessum fundi eins og bonast hefði verið til.

Munu ríkin því sjálf ákveða aflaheimildir sínar í ár eins og undanfarin ár. Íslendingar hafa veitt  16 til 17 prósent  af heildar veiðinni og samkvæmt því verður hlutur Íslendinga í ár um 145 þúsund tonn.
 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku