Anton og Hlynur varadómarar í dag

Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson verða varadómarar á leik Pólverja og Þjóðverja og einnig á leik Dana og Svía í lokaumferð milliriðils eitt á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu í dag.

Serbar eru öruggir í undanúrslitin úr milliriðli eitt fyrir lokaumferðina en Þjóðverjar, Danir, Makedóníumenn og Pólverjar eiga enn möguleika á að fylgja þeim þangað. Þjóðverjar eru með fimm stig, Danmörk með fjögur stir og Makedóníumenn og Pólverjar þrjú stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku